Engimýri

Lodge

Verið velkomin í Öxnadal!

Engimýri Lodge er fallega staðsett gistihús í miðjum Öxnadal, umkringt friðsælu fjallalandslagi.


Við erum í innan við 30 mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri.

Skrunaðu niður

Í Öxnadal við rætur Tröllaskaga er að finna eitt hið fegursta landslag milli Reykjavíkur og Akureyrar.


Allt svæðið er frábært fjallgönguland og veðrið með því betra sem finnst í íslensku fjalllendi.

Staðsetningin

Á Engimýri eru 16 svefnherbergi, rúmgóður veitingastaður og verönd með heitum potti og ótrúlegu útsýni yfir dalinn.


Engimýri er notalegur staður til að vera á, sama hver árstíðin er.


Húsið

16

herbergi

32

rúm

40

sæti

Héðan er stutt í margt af því besta sem norðurland hefur upp á að bjóða. Á veturna geturðu notið þess að horfa á norðurljósin. Svo er nóg af góðum skíðasvæðum á svæðinu til að velja úr.


Á sumrin er Engimýri kjörið næturstopp fyrir ferðamenn á hringveginum. Mörg dvelja í allt að 3 nætur til að skoða norðurlandið betur.

Afþreying

Hérna er dagatalið okkar